Lög MC. NORNA
Heiti félagsins
1. Félagið heitir MC. Nornir.
Markmið félagsins
2. Félagið er Mótorhjólaklúbbur kvenna á Norðurlandi sem starfar í þágu almannaheilla og hefur að markmiði sínu:
a. að skapa jákvæða ímynd á meðal kvenna á mótorsportinu,
b. að standa vörð um hagsmuni félagsmanna,
c. að sjá um samkomur félagsmanna, t.d. fræðslu, umræðufundi og skemmtanir,
d. að skipuleggja ferðir.
Heimili og varnarþing
3. Heimili og varnarþing félagsins skal vera á Akureyri.
Merki félagsins
4. Félagið notar merki "nornarinnar á hjólinu". Óheimilt er að nota það til prentunar á klæðnað, skiltagerð eða á annan hátt, nema með fullu leyfi stjórnar. Armmerkið skal staðsett á hægri upphandlegg. Armmerkið er eign félagsins og skal því tafarlaust skilað ef félagi er brottrækur.
Innganga í félagið
5. Inngöngu í félagið geta konur fengið sem náð hafa 18 ára aldri. Einungis þarf að hafa áhuga á mótorsporti, próf og hjól eru ekki skilyrði. Sækja þarf um aðild á þar til gerðu eyðublaði. Þegar umsækjandi hefur greitt árgjald fær hann úthlutað númeri. Númeri skal ekki endurúthlutað þó félagsmaður hætti, er brottrækur eða fellur frá.
5.1 Ungar konur, á aldrinum 15 til og með 17 ára, geta sótt um aðild að félaginu með skriflegu
samþykki forráðamanns. Koma skal á laggirnar sérstakri ungliðadeild. Halda skal fundi með ungliðadeildinni einu sinni í mánuði og hafa sérstakan forvarnardag á hverju vori í apríl-maí.
Ungliðar eru ekki rukkaðir um félagsgjöld, en færast sjálfkrafa úr ungliðadeildinni og í félagið þegar þeir hafa náð 18 ára aldri. Þegar fyrstu félagsgjöldin hafa verið greidd er þeim úthlutað númeri í félaginu og fá afhent félagsmerki.
Fullgildir félagar
6. Fullgildur félagi telst sá sem greitt hefur félagsgjald hvers starfsárs og fengið úthlutað númeri.
Refsingar og brottvísun úr félaginu
7. Hægt er að vísa einstaklingi úr félaginu hafi hann skaðað ímynd þess. Til þess þurfa fimm fullgildir félagar að leggja fram skriflega og rökstudda kæru til stjórnar. Berist stjórn brottvísunarkæra skal hún vinna úr henni innan þriggja vikna frá því að kæra berst. Stjórn boðar þann ákærða á sérstakan fund til að hann geti notið andmælaréttar síns. Meirihluta stjórnar þarf til að staðfesta eða hafna brottvísunarkæru. Þegar stjórn hefur unnið úr kæru skal hún tilkynna niðurstöðu sína á næsta almenna félagsfundi.
7.1 Refsing við brot á lögum félagsins eru "álög". Hafi félagi fengið þrjú álög skal hann gerður
brottrækur.
Um álög:
Prófmissir vegna ofsaaksturs 2 álög
Prófmissir vegna ölvunaraksturs 2 álög
Slæm hegðun á viðburðum í nafni félagsins (að mati 5 félaga) 1 álög
Drykkjulæti á aðalfundi 1 álög
Opinbert níð um félagið eða einstaka félaga þess 1 álög
Stjórn getur ákveðið að leggja álög á félaga ef meirihluti stjórnar er samþykkur.
Álög skulu fyrnast á einu ári.
Ef félagi er brottrækur getur hann sótt um inngöngu í félagið aftur, hafi hann haldið "skilorð" í eitt ár frá brottrekstri.
Úrsögn úr félaginu
8. Hægt er að segja sig úr félaginu hvenær sem er og skal það gert skriflega til stjórnar. Árgjald fæst ekki endurgreitt.
Starfsár félagsins
9. Starfsár stjórnar og nefnda er milli aðalfunda. Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Aðalfundur
10. Aðalfundur skal haldinn fyrir 31. mars ár hvert. Hann skal boðaður bréflega eða með tölvupósti með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur telst gildur ef löglega er til hans boðað. Fullgildir félagar sem mæta á aðalfund hafa þar atkvæðisrétt. Óheimilt er að framselja atkvæðisrétt sinn til annarra.
Dagskrá aðalfundar:
a. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b. Skýrslur stjórnar og nefnda.
c. Reikningar liðins árs lagðir fram.
d. Árgjald ákveðið fyrir næsta starfsár.
e. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs lögð fram.
f. Lagabreytingar.
g. Kosning stjórnar, varamanna og tveggja skoðunarmanna reikninga.
h. Önnur mál.
Lagabreytingar
11. Lagabreytingu má aðeins framkvæma á aðalfundi. Tillögur til lagabreytingar skal senda stjórn félagsins með minnst þriggja vikna fyrirvara, skal stjórn staðfesta móttöku þeirra og senda þær út með aðalfundarboði. Til breytinga á lögum félagsins þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Stjórn félagsins
12. Stjórn félagsins samanstendur af formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera, tveim meðstjórnendum og tveimur varamönnum. Stjórn skal kosin á aðalfundi félagsins. Formann skal kjósa í sérstakri kosningu á aðalfundi til tveggja ára. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir sitthvort árið: annað árið: varaformaður, ritari og einn meðstjórnandi; hitt árið: gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Varamenn eru kosnir á aðalfundi til eins árs. Atkvæði formanns gildir tvöfalt ef atkvæði falla á jöfnu.
Framboð í stjórn skal háð því að viðkomandi framboðsaðili hafi verið fullgildur félagi í a.m.k. átta vikur fyrir aðalfund. Einnig verið virkur félagi, þ.e. hafi mætt á fundi og tekið þátt í starfsemi félagsins með einum eða öðrum hætti. Framboð í stjórn skal berast stjórn félagsins í síðasta lagi tveim vikum fyrir aðalfund til að hægt sé að meta lagalegt gildi framboðs. Ef fleiri en einn einstaklingur er í framboði um hvert embætti skal kosning vera skrifleg. Meirihlutakosning gildir og ef atkvæði falla jafnt skal kosið aftur á milli viðkomandi einstaklinga. Sá sem ekki hlýtur kosningu í stjórn hefur möguleika að bjóða sig fram í varastjórn á aðalfundi.
Formaður boðar til stjórnarfunda ef þörf krefur eða tveir stjórnarmeðlimir óska þess enda hafi þeir áður gert grein fyrir fundarefni.
Nefndir
13. Stjórn er heimilt að skipa eða leggja niður nefndir ef svo ber undir. Verksvið nefndanna er nánar skilgreint af stjórn, sem sendir þeim erindisbréf. Fjármál nefnda skulu vera undir stjórn gjaldkera félagsins og er honum heimilt að útbúa sérstaka sjóði fyrir þær ef þess þarf.
Félagsfundir
14. Stjórn boðar til almennra félagsfunda og setur þeim dagskrá. Fundarboð skal sent með þriggja daga fyrirvara í tölvupósti til allra félagsmanna og birt á heimasíðu félagsins. Í dagskrá fundar skal koma fram hver verður fundarstjóri sem stýrir fundi samkvæmt dagskrá. Ávallt skal taka fyrir liðinn "önnur mál". Ritun fundagerða er í höndum ritara félagsins. Hjólaferðir teljast ekki til félagsfunda.
Félagsgjald
15. Aðalfundur ákveður upphæð félagsgjalda fyrir næsta starfsár og skal það greitt inn á reikning félagsins. Nýir félagar greiða félagsgjald við inngöngu í félagið.
Tekjur
16. Tekjur félagsins byggjast aðallega á félagsgjöldum, en einnig af ýmis konar fjáröflunar starfsemi. Félagsgjöld skulu notast í framleiðslu á merkjum, leigu á húsnæði og annan kostnað í þágu allra félaga. Félagsgjöld skulu að öllu jöfnu ekki notuð í skemmtanir og er félaginu frjálst að taka hóflegt gjald fyrir einstaka viðburði á vegum hans.
Slit félagsins
17. Félagið verður aðeins leyst upp á aðalfundi. Til þess þarf samþykki 3/4 hluta fullgildra félaga. Eignir félagsins skulu renna til Mótorhjólasafns Íslands á Akureyri kt. 601207-2060.
Gildistaka
18. Lög þessi eru samþykkt á aðalfundi þann 23. mars 2010 og öðlast þau þegar gildi.
