Saga Mótorhjólaklúbbsins
MC.Nornir mótorhjólaklúbbur var stofnaður 7.janúar 2009. Stofnkonur voru Þóra Kristín Flosadóttir forsprakki klúbbsins Norn # 1 , Vilborg Daníelsdóttir Norn # 2 og Alda Ósk Hauksdóttir Norn # 3.
MC.Nornir er mótorhjólaklúbbur, ætlaður konum, sem hafa áhuga á mótorsporti. Markmið klúbbsins er að skapa jákvæða ímynd meðal kvenna á sportinu, þjappa þeim saman, fræða og vera með öflugt félagsstarf.
Konur fá félaganúmer við inngöngu í klúbbinn.
Fyrsti formlegi fundurinn var haldinn á Kaffi Amor, laugardaginn 17.janúar 2009. Þar mætti fjöldi kvenna. Bílaklúbbur Akureyrar færði klúbbnum blóm og konfekt, og bauð fram félagsaðstöðu til fundahalds. Fundir eru nú haldnir í félagsheimili BA, Frostagötu 6 b, hálfsmánaðarlega.
Hjólað er eins oft og tækifæri gefast, farið í ferðalög, forvarnadagur og námskeið eru haldin. Haldið er úti heimasíðu www.mcnornir.com og eru þar ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir mótorhjólafólk.
Ungliðadeild var sett á laggirnar í byrjun ársins 2010 fyrir stúlkur á aldrinum 15-18 ára.
Fyrsti fundur deildarinnar fór fram þann 26.janúar 2010. Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði í félagsheimili BA, Frostagötu 6. b. Ungliðar greiða engin félagsgjöld, en þurfa samþykki forráðamanns.
Ungliðar fá úthlutað félagsnúmeri eins og aðrar Nornir, en með bókstafnum U fyrir framan. Þegar ungliðar ná 18 ára aldri, færast þær sjálfkrafa inn í félagið og bókstafurinn U fellur niður um leið og fyrstu félagsgjöld eru greidd.
Markmið MC.Norna er að hjálpa stúlkum í mótorsportinu að fóta sig í umferðinni. Að þær fái fræðslu í hópakstri, skyndihjálp og í viðhaldi hjóla. Árlega munu MC.Nornir standa fyrir skyndihjálparnámskeiði Ungnornum að kostnaðarlausu.
Upplýsingar um ferðir og viðburði er að finna á heimasíðu www.mcnornir.com undir krækjunni "Ferðir o.fl.".
Óskir þú eftir frekari upplýsingum, eða eftir inngöngu í klúbbinn, endilega mættu á næsta fund (sjá heimasíðu) eða sendu tölvupóst á mcnornir@mcnornir.com
