21.07.2010 12:43

AMAZING RACE 2010 !!

           Laugardaginn 14. ágúst.             Einnar nætur gisting.
         Klúbburinn MC. Nornir tekur þátt í kostnaði við ferðina.
Þáttökugjald er kr 500 og greiðist inn á reikning MC.Norna (sjá heimasíðu). Kvittun, merkt Amazing race, sendist á netfangið
mcnornir@mcnornir.com fyrir  kl 00:00 að kvöldi föstudagsins 6.ágúst.  Þáttökugjald fæst ekki endurgreitt.

  Innifalið í þáttökugjaldi                          Nauðsynlegir fylgihlutir:
MEÐ framlagi klúbbsins:                           Svefnpoki
Nesti báðar leiðir                                 Sundfatnaður
Gisting                                              Regngalli 
Kvöldsnakk                                         Eigin Nornamjöður
Morgunverður                                      til að njóta að kveldi
                   Ferðatilhögun er eftirfarandi:
              Lindin kl 11:30    Lagt af stað kl 12:00
Hraði og keyrsla: Ein fyrir allar og allar fyrir eina.
Mörg stopp til að nestast, tanka og teygja úr sér.
Áfangastaður er xxx km í austur og bundið slitlag alla leið.
Þar förum við út að borða saman (og borgar hver fyrir sig), og frjálst framhald eftir getu og vilja hvers og eins
   Með í för verður bíll af einhverju tagi fyrir farangur, og kerra fyrir hjól, ef einhver Nornin tekur upp á þvi að verða flugveik, eða þarf einhverra hluta vegna að hvíla kúst sinn um stund.
                                            Plan B er til staðar ef veður verður afleitt
Kærar kveðjur með von um góða þáttöku
Skemmti-og ferðanefnd: Íris Huld #19, Þóra Lilja #42 og Hrönn #17
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 112
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 122301
Samtals gestir: 38392
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 00:23:50