15.07.2010 11:46

Æfingaakstur fyrir konur/stelpur með próf, og vilja meiri æfingu!!

Ungliðadeild MC.Norna stendur fyrir æfingaakstri undir leiðsögn kennara, frítt fyrir stelpur 15-18 ára, á fimmtudagskvöldum kl 20:00-21:00 á planinu hjá VMA.

MC.Nornum stendur til boða að nýta sér þennan æfingaakstur. Frítt fyrir greiddar Nornir, en 500 krónur tíminn fyrir ógreiddar og aðrar konur, sem vilja taka þátt í þessu með okkur.

Gaman væri að sjá sem flestar nýta sér þetta tækifæri til að rifja upp og/eða bara til að hittast og æfa jafnvægi og viðbrögð.

Höfum gaman saman og stuðlum að öruggari akstri í umferðinni  emoticon

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 112
Gestir í gær: 36
Samtals flettingar: 122301
Samtals gestir: 38392
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 00:23:50